|
|
27.12.2007 20:06:12 / fanneykr;*
jæja jólin byrjuð.. égvar í sveitinni á þorláksmessu, aðfanga, jóla og annan í jólum, sem var hrein og bein snilld. myndir: sækja hey fyrir kindurnar myndarlegir bræður mínir Kristel systa og fanney afi að segja mér sögu, ég skil ekki sko systir mín að gefa kanínunni blindandi Englendingurinn Andrew og Englendingurinn/íslendingurinn Kristel  mamma sem er uppalinn í sveitinni ég er klárlega að mjólka þessa ég mjólkaði, eða "mjólkaði" ég horfði á pabba, kristel, andrew og daða mjólka haha enda varð ég hrædd þegar ein beljan(sorry afi) sparkaði í laufey! en ég talaði samt helling við þær kýrnar, enda bestu skinn! á aðfangadag fórum við í fjós og byrjuðum að mjólka kl. 6(þegar allir aðrir voru að byrja að borða..) ég horfði bara á klukkuna með eymdarsvip haha. en heyrðu allt í einu varð allt vatnslaust og við ákvaðum að kíkka út, þá var rafmagnslaust í báðum húsunum(ömmu&afa og okkar), þá fór afi að fikta og tók rafmagnið af fjósinu i mínutu og allt í lagi,en enn ekkert rafmagn komið á húsin.. heyrðu svo allt í einu fór rafmagnið og allt SVART, égvar skíthrædd í fjósinu með 8 kýr við hliðiná mér og 20 bakvið vegginn.. þið vitið.. heyrðu bræður mínir þurftu að keyra til Húsavíkur(ca.10-15 mín hvora leið og fá öryggi hjá frænda því það var ónýtt! svo við biðum bara í myrkrinu, þegar daði og bjarki komu fórum við systurnar í hús og stukkum í pottinn og þvílík blessun þegar ljósin komu á fljótlega eftir að við hentum okkur ofan í!! við borðuðum kl.22 vegna allir áttu eftir að fara í sturtu og strákarnir kláruðu að mjólka og gefa kálfunum. opnuðum pakkana sem ég var mjög fegin með og svo hringdi ég í júlíu að spjalla.. heyrðu svo las ég eins og hestur, annað gerðiég ekki þessa sveitadaga nema viðra mig, playstation,fór að skauta á tjörninni, veislu til Beggu & Hálfdans og til ömmu og afa. ekker meir að segja skoooooo.. væri þér sama blessör  ég og rósa mín í jarðfræðiferðinni:*  jeeah
 augamyndir eru í tísku right?  svona myndir líka
»
09.12.2007 19:30:00 / fanneykr;*
sæl veriði.. eða sæl þessi eina sál sem les þetta blogg og öll hin... mætti segja að ég sé ööööömurlegur bloggari miðað við hvað margir skoða þetta helvíti! en jæja.. hvað 15 dagar í jól.. já, jólin eru á mánudegi! en shit! þau eru alveg að koma,, fokkit, það eru einhverjar 2 vikur í þetta allt saman og ég á eftir að kaupa allar jólagjafirnar og ég veit EKKERT handa hvejrum ég kaupi, þetta verður erfitt ár sko. En því er að ljúka svo við getum beðið spennt eftir '08 úúúú.. maður verður ábyggilega mest að læraí jóla"fríinu", þetta verður náttla ekki frí ef maður verður að læra bara og læra! en svona er lífið: life is a bitch þegar maður er með hælsæri ekki satt? (smá skot hérna á eina yndislega manneskju) en vá ert þú spennt/ur fyrir jólunum, ég hef verið að reyna að hlusta á jólalög, drekka jólaöl og borða mandarínur en ég verð bara ekki millimetra meira spennt ég gæti örugglega ekki verið óspenntari! en að allt öðru hvert á ég að fara í ágúst (ef ég fæ að fara:/)? ég er að hugsa: Spánn => 1 USA => 2 Ítalía => 3 Frakkland => 4 Ástralía => 5 samt langar mér svo geðveikt mest til usa en samt líka spain svo ég er svona vá! með hverju mæliði?? ég verð að fara. komin með leið á íslandi og ég á eftir að deyja úr kulda hérna í vetur fokk sko. það er ekkert venjulega kalt og ég er mesta kuldaskræfa í heimi! ég sit hérna í tölvunni með iPod að hlusta á Justin Timberlake meðan ég á að vera að læra mín kæra! ég nýbúinn í vinnunni og nenni ekki að gera skít, enda er ég vön ég geri aldrei neitt um helgar,, finnst gott að tjilla bara.. þó að fólk sé hérna blindfullt allar helgar og slefandi uppí hvert annað og ælandi á gólfið, sofnadi hjá þessum og hinum og deyja bara allstaðar, þá hef ég ekki áhuga. en ég fór í fjallið og mmmmmmmm það var nice að festa sig aftur á þessari þunnu þjöl þarna og renna sér á "ógnarhraða" niður blessaða Hlíðarfjall með vindinn og tárin í augunum! það gæti ekki verið betra nema jú! ég var í of litlum skóm og alltoflitlum snjóbuxum, ég var þarna í klst og ekki með gleraugu þó svo að Atli hafi boðið mer gleraugu þá sagði ég að sjálfsögðu nei, eins og hálfviti! ég er með þágufallssýki, fokk sko, eins og kannski flestir unglingar hehe ég var að skrifa ritgerðina áðan og eina sem mamma lagaði var úr mér í mig. það var örugglega svona 17 sinnum! léleg ég nenni ekki að tauta meira, enda skoðar þetta enginn svo sjáumst (: (: (: (: (: (: (:
»
05.12.2007 14:27:16 / fanneykr;*
Brotna Leikfangið - Hugrof - Ég hef sögu að segja frá litlum strák í vandræðum alræmdur, fanst gaman að ger-aðra að atlægjum alslæmur fann ekki sorg fyrir hatri öllum fannst hann cool það elskuðu hann allir en einn snéri við blaði, stakk hann í bakið hatandi á þetta þessi þroskaðist opnaði nýja leið, ekkert einelti ekki cool fyrstu árin svo varð hann feitt heppinn fékk feitt ríspekt, en hinn var þjáður fólkið fór að missa álit á þessum barnalátum nú alltaf grátur frá þessum sem að áður hló þarfnast athygli aftur, segjir núna sjáðu blóð lág um nótt byrjaður að skera sig og fleira dópar-sekkur aðeins skóla-hrekkur hann feilar en hann eldist og hann eignast son fastur í dópinu og það var fleira fokd hann var ennþá þunglyndur að hámarki fékk það ekki á sig en sálin hans var grátandi hatandi á sjálfan sig, og heyrir öskurin daginn eftir fannst hann eftir einn hangandi í snörunni svona getur lífið verið ósanngjarnt þú ert leikfang, það er verið að brjóta það hjartað slær svo fast að það brýtur í þér brjóstkassann svona getur lífið verið ósanngjarnt þú ert leikfang, það er verið að brjóta það hjartað slær svo fast að það brýtur í þér brjóstkassann lífið þitt er brotið og þú þarft að móta það Það var eitt sinn gaur, langvinsælastur Allir vildu vera hann, stelpunum fannst hann sætastur Hann átti flotta kærustu, það sama að segja um bílinn hans Það var allt frábært og fullkomið við lífið hans Hann átti góða fjölskyldu, átti heima í stóru húsi Engin fjárhagsvandamál, aldrei þröngt í búi ...dekurbarn, fékk allt upp í hendurnar Hann hafði það fínna en nokkur maður getur haft En lífið er ekki alltaf dans á rósum því oft stinga þyrnarnir Hann kom að sinni heittelskuðu langt frá lífsmarki Hann sá strax hvað var að, hún var föl eins og snjórinn Hringdi á sjúkrabíl... það var allt út í blóði Stór pollur á gólfinu, rakvélarblað í hendinni Við hliðina á henni var miði sem hún skildi eftir sig Á honum var hennar kveðja við þetta veika líf Vildi ekki lifa lengur í þessarri veröld sem hún átti heima í Sorgin safnaðist og tárin runnu Gat ekki verið þarna lengur, þurfti að komast í burtu Hún fór frá honum að eylífu.. hann vildi ekki trúa því Hljóp út á götu og dó er hann varð fyrir sjúkrabíl svona getur lífið verið ósanngjarnt þú ert leikfang, það er verið að brjóta það hjartað slær svo fast að það brýtur í þér brjóstkassann svona getur lífið verið ósanngjarnt þú ert leikfang, það er verið að brjóta það hjartað slær svo fast að það brýtur í þér brjóstkassann lífið þitt er brotið og þú þarft að móta það Ég ætla að seigja ykkur sögu af strák já lífið hans frábært ekkert svo ríkur lítil íbúð í árbæ fjölskyldan lítil mamman hún stakk-af en hann þektana ekkert svo hann var lítið að kvarta en hann elskaði pabbann og stelpu sem var falleg en hún var að deita gaur svo það var lítið sem hann gat-gert en hún átti huga hans , átti hverja hugsun vínið deyfði sársaukan svo hann var alltaf fullur átti fáa vini eingin til að tala-við hann leit á pabba sinn sem sinn eina sanna-vin en einn daginn eftir skóla settann lykil í skránna blasti við hann sjón sem að fékk hann til að gráta hárin hans risu og hjartað hans bráðnaði sá pabba sinn í snöru og fæturini hángandi datt niður grátandi og tárin hans féllu-þar símin hans hringdi og það var mamma stelpunar lét hann fá fréttir en ekki þær sem hann vonaði fréttirnar svo slæmar að hjartað hans stoppaði leikfangið brotnaði og hann bara grét-þá þá virtist eini vinur hans vera byssan sem hann hélt-á svona getur lífið verið ósanngjarnt þú ert leikfang, það er verið að brjóta það hjartað slær svo fast að það brýtur í þér brjóstkassann svona getur lífið verið ósanngjarnt þú ert leikfang, það er verið að brjóta það hjartað slær svo fast að það brýtur í þér brjóstkassann lífið þitt er brotið og þú þarft að móta það jæja blogg.. ég hef eiginlega bara ekkert að segja nema að hlusta á þetta lag.. maður grætur bara við að hlusta á textann:/ skóliskóliskóli - læralæralæra skeit á mig í dag.. var að gera ritunarverkefni um Hvid Sommer! vá sko.. er ég svona léleg í dönsku.. púff.. til hamingju með lífið:*
»
21.11.2007 18:01:32 / fanneykr;*
hææææ heyrðu ég var "beðin" um að blogga,, réttara sagt var mér sagt að blogga. bloggari af guðs náð orðaði því að mér að ég ætti að blogga og að sjálfsögðu geri ég eins og hún segir, ég bloggaði á mánudaginn en að sjálfsögðu eins og 3/4 af öllum bloggum eyddist það:/ skóliskóliskóli, maður gerir varla annað nema æfingar sko,, vúhú að sjálfsögðu tekur maður sér tíma og hittir vinina fer í bíó og tekur stelputjill með stelpunum. besti skóladagurinn að baki þar sem miðvikudagar eru alltaf stuttir, 5tímar, til 12:10 en þegar ég kom í skólann með Beggu beið okkar doritos og kristall +, árshátíðin eftir 9daga og allir glaðir! heyrðu þegar við vorum að fá þetta þá kom Aron og sagði að það væri frí í íslensku!(JESS) og þá fórum við bara í 3 tíma í dag.. fórum strax til Rósu á vistina og lögðum okkur þar (ég lúmska vaknaði kl. 5 mín í 10(mæting 10) og ætlaði ekkert að vekja gellurnar, bara skrópa en þá vaknaði rósa 4 mín í og rak okkur á fætur en haha ég var bara fegin þegar ég kom í skólann ) en voða hresst er alltaf í strætó á morgnanna þar sem maður hittir beggu skælbrosandi með gardínur, júlíu sem einungis spyr, fanney, áttu eitthvað að borða eða áttu tyggjó! öldu sem vinnur í brynju og stundar líkamsrækt og rokkara sem situr ávallt aftast. ég er ekkert með skemmtilegustu kennara ever, ég sakna sigga, þórönnu, FRÍÐU(þar sem ísl kennarinn minn er í VERRI kantinum því miður:/) og fl. ég sakna líka gamla glerárskólaliðsins,, maður hittir nokkurí skólanum en maður labbar eiginlega bara framhjá þér, eins og Guðna, ég fer eiginlega aldrei að spjalla við hann bara á göngunum, a bara brosi og labba framhjá skrýtið.. síðustu dagar eru búnir að vera soldið leiðir hjá mér og enginn veit af hverju,,, ekki einu sinni ég þá er það eitthvað gruggugt:/ ég mæli með að þeir sem nota heilann sinn mæti á morgun kl. 20:00 í MA og sjái Sprengjuhöllina og Dikta spila, kostar 1000 kr. inn og ég bara mæli eindregið með þessu, ég ætla allavegna pottþétt! ég er náttla eitthvað rebubbled fan sko.. og maaaaaaargir aðrir.. maður gengur um skólann og sér flest alla sem eru með tölvur vera að nördast í þessum leik, i like it hahahaha á ég að tuða eitthvað meira neiii,, en ég er að fara á leik eftir smá, Akureyri - HK þar sem ég VONA að Akureyri vinni því þessi leikur er á sama tíma og landsleikurinn Danmörk - Ísland er í knattspyrnu, ég ber mann ef þetta er tap hjá akureyri! og ég veit hver sá maður er. mæli svo með að þið hlustið á þessi lög: - take me back to your house - basement jaxx
- breakaway - basement jaxx
- illusion - benny benassi
- banquet - bloc party
- night falls - booka shade
- hot stuff - craig david
- halló heimur - dalton
- breaking the waves - dikta
- the drill - the drill
- sunnyroad - emiliana torrini
- somebody's me - enrique iglesias
- iris - goo goo dolls
- your moves are mine - gusgus
- hold you - gusgus
- david - gusgus
- moss - gusgus (hitaupp fyrir árshátíðina)
- let me think about it - ida corr
- 1973 - james blunt
- how far we've come - matchbox 20
- betra líf - páll óskar
- girls kiss girls - pittsburgh slim
- i love it - sneaky sound system
- tears don't fall - tryggvi & stebbi snillingar

þá er ég góð
»
04.11.2007 15:36:49 / fanneykr;*
jæja nú er ég í vetrarfríi... eða vetrarfríið er búið núna.. byrjaði á miðvikudaginn mm svolítið nice á miðvikudaginn eftir skóla kl. 12 fór ég að vinna og vann til 6.. það var ágætt alveg en fór þá heim og fór á fund um kvöldið vegna afreksskóla þórs, mér leist mjög vel á þetta sko! en eftir fundinn fórum við stelpurnar heim til beggu og slúðruðum með slik og læti. á fimmtudaginn fórum við stelpurnar í bæinn að skoða kjóla en það varði ekki lengi, fórum á subway í einn sveittann og þar lá leiðin fyrir júlíu í klippingu og litun en okkur jónu í hvað 10/11.. man það ekki, ég er að reyna að muna hvað ég gerði, jú við fórum svo heim til jónu ég og hún og jóna "græjaði" sig, þúst tók hana 3047534768396 klst að gera þetta haha jane en það tókst á endanum, fórum svo heim til mín og ég græjaði mig.. fórum svo í VMA á LJÓTU HÁLFVITANA shit hvað það var gaman. ! . sjaldan hlegið jafn mikið, mér langar aftur sko! eftir þetta fórum við smá að keyrakeyrakeyra og klessa smá á hérna! en jæja.... á föstudaginn gerði ég slíkt hið sama.. fór í bæinn og við fórum á subway,, what a surprice.. ég, þóra, inga, begga, júlía og alda, held ég sé ei að gleyma en við stelpurnar keyptum miða á hr. norðurland og skemmtum okkur voða vel í byen.. fórum svo heim og græjuðum okkur enn og aftur og fórum svo í sjallann! þetta var stuð sko, og ég er ánægð að Ágúst örn vann því mér finnst hann gull af manni í útliti.. en það eru nú fleiri sætir líka haha þó þeir voru nú bara 7. en eftir sjallann fóru stelpurnar og ég og inga keyrðum eins og vanalega.. þetta gerum við best hahaha yeee á laugardaginn þá man ég ekkert hvað ég gerði.. held ég. vá sko.. þetta var í gær:/ en eins og systa segir þá fór ég í bæinn,, er það satt? ég er aldrei þar.. en vá sko.. gullfiska mynni hérna megin sko.. en ég man að sjálfsögðu hvað ég gerði um kveldið.. fór til tinnsý með stelpunum úr boltanum og við drukkum og urðum kolruglaðar,, eða þannig,, við erum fótboltastelpur hhah,, það var borðað fahitas og kaka.. mmmmm tinna er náttla delicious kokkur right? ójú.. við slúðruðum og það var spilað fifa eða e-ð rusl 2008.. en jæja.. gott kvöld sko.. langt síðan seinast. í dag verður þessi dagur valin leiðinlegasti dagur 2007 því kellan ætlar að læralæralæra eins og mofo því ekki vil ég falla..:/ ses i ugen sko eða hvað?
»
10.10.2007 14:41:35 / fanneykr;*
hææ. guð langt síðan ég hef bloggað bwahahha. en jæja,, það hefur margt á dagana drifið.. ég hef þúst lærtlærtlært, hitt vinina, busapartý nokkur, farið á subway hlustað á tónlist, sofið og legið svoldið á vistinni, maður nennir aldrei heim! alltof langt sko.. en MA; fínasti skóli.. bara alveg snilld skooooo.. eeeeeeeen; það er geðveikislega mikið að læra og oooft "gleymi" ég að læra og þá verð ég alltaf alveg snar í tímum maður.. og kennararnir líka!!! þokkalega já.. en hér sit ég, hlusta á Bloc party - Banquet og blogga.. nýbúinn að læra og á að vera að laga til,, og er að bíða eftir að jóna og júlía verði búnar í skólanum svo þær geti komið hingað. híhí snilld, þær bjarga mér í skólanum þó svo að ég sé búin að kynnast möööööökk af fólki þá er alltaf gott að hafa þær memmér.. jæja bekkurinn minn; hann er yndi sko.. og böðlabekkurinn líka.. frábært! fór með 1h í skálaferð núna á miðvikudaginn síðasta.. já myndi segja að ferðin tókst saman með prýði kveiktum reyndar í kofanum og rafmagnið fór af seintseintseint, svo að við sáum 0! en jæja.. samt rooosalega gaman og maður kynntist þessum greyjum sem maður þarf að hanga með í vetur. illa sátt með vinkonur mínar,, það er allt að ganga svooooooo vel! alda og arnar skúli blómstra og sömuleiðis hin gömlu pörin; íunn og frans, helgi og svala og oddný og jón atli og að sjálfsögðu er hún Jane mín að komme på með Jón Heiðari.. ohh love it! en við hinar.. já hvað með okkur hinar;o hehehe þetta kemur vonandi á endanum,, en einbeytum okkur að námi í staðinn.. ha stelpur?! hahahha suuuuuure en ég.. á afmæli "brátt" eller 26.nóvember.. :/ huuu,, segi ég því að það er eiginlega ekkert merkilegt útaf þá er ég einungis að mega fara í ökukennslu! guð hjálpi mer.. það eru semsagt mánður og 16 dagar í að ég fái að fara í ökutíma og akstur, þá bætist ár við að ég fái bílprófið.. vóó og þóra mín.. 15 dagar í þig sætust vil svo óska elsku stelpunum í 2.fl Þór/KA sem unnu KR 4-1 í bikarúrslitaleik, 3 af bestu vinkonum mínum voru að keppa!*stolt* en ætla að hundskast í að laga til.. au revoir! [www.myspace.com/fanneykr] ef þið viljið skoða myndir úr skálaferð og aðrarrrr;o
»
11.08.2007 21:16:58 / fanneykr;*
hey já bekkirnir komnir í ma! í hvaða bekk ertu? sama hvort ég
þekki þig ei..
ég er í 1h - veistu um e-ja þar.. veit alveg um e-ja sko.. en
langar að vita fl?
»
08.08.2007 21:37:35 / fanneykr;*
jæja nú er skólinn að skella á og omæ mér finnst það
andstyggilegt að ég verði t.d. ekki með Öldu, Beggu, Ingu, Þóru,
Rabba, Þóroddi og mfl. í skóla;o ég hef verið með þessum krökkum í
Glerárskóla frá 5.ára aldri, næstum öllum! svo eru helling af
skemmtilegu liði sem manni langar að kynnast betur sem fer í VMA,
en? jú allt er hægt sko
Ég get ekki beðið eftir að fá að vita bekkina.. shit sko,, samt
stressandi, hvað ef maður verðuur svo grautfúll,, verður þá bara
allt ömurlegt eða hvað? það má ekki allt eyðileggjast útaf með
hverjum maður er með í bekk maður, verður bara að sætta sig við
þetta! og læralæralæra, dugleg, alltaf segir maður þetta svo gerist
0..alltaf eins því miður, en þetta er ekkert spaug hjá mér, ég veit
að það eru fleiri sem hugsa eins og ég! Eva? duglegar í haust? já
vinkona.
Það er náttla hvílík spenna í kringum þetta allt saman, loksins að
fara í nýjan skóla sem er miklu stærri og allt krakkar á "manns"
aldri, skiljiði, allt upppí 4 árum eldri. ussh en mér er sagt að
þetta sé bara snilld og Daði segir að þessi skóli eigi eftir að
henta mér vel, bekkjarkerfi og gott félagslíf.. vonum það besta
right? vonandi getur hann hjálpað mér e-ð og Kristel mín e-ð með
enskuna en ég vona samt að ég lendi með e-ri af Júlíu, Íunni, Evu,
Oddný, Svölu, Jónu, Ottó, Gísla, Atla, Reyni, Guðna eða e-jum örðum
góðum félaga í bekk.. allavegna að þekkja einn - að
sjálfsögðu lendir maður með einum kunningja.. eiginlega bara 100
%.
heyrðu styttist í jólin maður og afmælið mitt í leiiðinniii..
hah nei ég er að spauga, það á HELLINGUR af fólki eftir að eiga
afmæli í ágúst; íris, arna, jónsi coach, sóley kristín, jóhanna
hildur og kristel, í sept; sveinn óli, amma, mamma, alda, jóna,
víkingur, bergljót, jón geir og mfl.
heh sjáumst.
svo vil ég kasta kveðju á hana Elsku Jónu mína sem er uppá
sjúkrahúsi með einkyrningssótt og skaddaða lifur eða guð má vita
hvað,, allavegna mjög veik og er búin að vera það í 2 vikur, búin
að vera mjög dugleg, átti að fara til DK með Júlíu, Þóru og pabba
sínum á miðvikudaginn sl. en hún veiktist rétt fyrir! greyjið! Jóna
mín ég get ekki beðið eftir að hitta þig ástin mín;* vertu sterk,
ég veit að þú ert búin að vera það! elska þig<3 ;3
»
06.08.2007 14:21:48 / fanneykr;*
'
hæ
það var ógeðslega gaman um versló punktur.
Á föstudaginn uu vá ég man varla hvað er gerði þá, jú ég fór í
bæinn með uuuu júlíu, þóru, öldu, beggu, ingu hehe held ekki
fleirum.. en það var mjöööööög fínt, fórum í freak out maður og
hittum alveg bunch af fólki sko - bara gaman.
Á laugardaginn var hins vegar miklu skemmtilegra
miklu sko - ég gerði ekki mikið um daginn en fór til Berglindar um
5 eða e-ð og vorum bara að e-ð. Svo fórum við til Íunnar um kvöldið
og græjuðum okkur og svona, tónlistin í gangi þar og e-ð af fólki;
þóra, inga, júlía, íunn, alda, svala, oddný, berglind, bjarney,
reynir, guðni, frikki, oddur, svenni, þórgnýr, þórir, helgi, gísli,
ingi..... ogsvoframvegis. Um man ekki e-ð fyrir 12 fórum við uppí
KA-heimili á Palla, það var alveg bunch af fólki þar, 1500 manns,
það var geggjað þar sko!
Á sunnudaginn fór ég með oddný og berglindi í
bæinn, þær fóru í freak out, svo fórum við á subway og vorum að
rölta um bæinn, heyrðu svo skoðuðum við allar fatabúðirnar í bænum
sem eru 6 eða e-ð. rosalegt sko, hey svo sótti tinna okkur og við
vorum aðeins hjá oddný, fengum smá föt að láni - takk fyrir það!
fórum svo heim um 8, fór í sturtu og svo til öldu, þar voru; júlía,
þóra og inga svo kom berglind, við græjuðum okkur og fórum svo
fínar með taxa uppí KA-heimili á no request, þegar við komum kl.
svona 23;40 var ENGINN að dansa, enginn! en það batnaði fljótlega
og áður en maður vissi af var alveg hellingur kominn þarna,, maður
dansaði alveg helling sko, geggjað gaman. Samt svindl að þau fullu
þurfa ekki að muna eftir öllu sem gerist þarna maður.. hehe en
eftir ballið fórum við e-ð niður í bæ helling af fólki, það
var fínt, slagsmálahundar þarna um allt, ussh! Fleiri á
Palla-ballinu en skemmtilegri tónlist á no-request, en samt var
betra á palla!
Í dag verður held ég tjill, kannski e-ð smá út á
eftir en vinna á morgun svo ekkert mikið heh.
Styttist svo óðum í skólann en hann er settur man
ekki 16.sept? e-ð svoleiðis, það verður
spennandi.
.
sjáumst!
.
»
30.07.2007 17:50:22 / fanneykr;*
hæ
ég var á ættarmóti um helgina,, hvílík stemning maður.. allir
blindfullir og allt brjálað, sungið og dansað við eld og allir
síkátir.. hitti helling af nýju fólki þó þetta hafi verið systkini
afa míns og afkomendur og makar.. það var gaman
fór á föstudagskvöld um svona 11. þá var Daði komin norður með
flugi og kom og sótti mig heim og pabba á Golfvöllinn.. stoppuðum í
Leiru og fengum Pulsu.. mm gott þaað hhehe, keyrðum svo með Pink
Floyd í botni, pabbi alveg snarvitlaus að hlusta á þetta, honum
fannst það ekki leiðinlegt. komum svo þarna e-ð uppúr 12. fór þá
strax í bolta með frænds. og co. það var gaman sko, maður gerði
fátt annað en bolta enda lifir maður fyrir þetta right? en ég man
voða lítið eftir föstudagskvöldinu sko.. uu,, það skiptir heldur
ekki máli ok
á laugardaginn vaknaði maður alveg skínandi hress og snæddi
morgunverð,, svo lék maður boltum fram og fórum svo allir
krakkarnir + Bangsi, Jónas og Tinna á svona geggjað stóran vagn sem
fastur var í Traktor og keyrðum um Túnin öll og vötnin, það var sko
stuð, Börkur að keyra.. fórum svo ég, Daði, pabbi og Slaufa mín að
veiða,, gekk ekki vel myndi ég segja.. umm,, svo grilluðum við
hádegismat sem var með eindæmum, loks keyrðum við fjölskyldan til
Húsavíkur þar sem leiðin lá í sund en þar sem sumir eru með baun
milli eyrnanna þá tók ég ekki sundföt svo ég sat inní bíl og
hlustaði á tónlist.. þá rann mér upp hugmynd að heyra í Berglindi
og þá var hún á húsavík til allrar hamingju,, svo mér hlotnaðist sá
heiður að fara með þeim Alexandri og Kristínu? smá að keyra,,
skiluðu mér svo aftur í bílinn.. þá kom min fjölsk, stuttu seinna.
fínt það en þegar við komum aftur frá Húsavík þá voru svokallaðir
"leikir" svona boðhlaup með þrautum og svoleis.. byrjuðu á að fara
svona 3&3 á skíðum yfir og hlaupa til baka svo 1 að hoppa í
poka yfir og hlaupa til baka svo 1 að hlaupa yfir og snúa sér 7
hringi kringum skóflu og svo 1 að hlaupa yfir og berja nagla. þetta
var snilld. svo var tekið svona unglinga/fullorðins hlaup vs.
krakkarnir, þar sem ég 16, þórgrímur 18 og júlíana 20 vorum einu
unglingarnir þurftum við hjálp frá gömlu settunum og svei mér þá,,
þá flugu 3 á hausinn útaf þarna snúa sér 7 hringi,, pabbi ætlaði nú
bara útí sjó, þetta var drepfyndið!
eftir þessa leiki var leikið sér í bolta og haft gaman þangað til
fólkið grillaði ofan í okkur hausana og fengum öll þessar dýrindis
máltíði.. danke. eftir mat var svo tjill,, hlustuðum á gamlar
sögur,, ég, þórgrímur, daði og örn þór héldum á lofti með stæl og
fórum svo í homma, uu sátum við brennuna og fórum í berjamó,, eða
ég fór í berjamó ein,, það var fínt nema það var KALT!!! shit hélt
ég ætlaði ekki að lifa lengur.. uu svo lagðist ég í tjaldvagninn,
borðaði krækiber og hlustaði á falleg róleg lög og lá þar.. svo
ætlaði ég að fara að sofa þá kom Daði minn og spjallaði við mig í
þónokkurn tíma,, alltaf best að tala við hann! hann hefur upplifað
allt sem ég er að fara í nuna,, MA og allt það skiljiði, var að
koma með alls konar sniðugt, en svo ákvað ég að leggjast í bólið..
ég og laufey sváfum bara í tjaldi þarna,, og shit ég var í buxum, 2
sokkum, hettupeysu vafða um lappirnar, sæng, 2 kodda, í hettupeysu
með hettuna á og Fjallaúlpuna mína og hettuna á. ég ætlaði ekki að
sofna úr kulda,, þetta var ssvo óþæginleg tilfinning, systa kom inn
2 tímum seinna inn og þá var ég ennþá vakandi og ennþá jafn
skítkalt!! þetta var rosalegt..
á sunnudaginn var svo vaknað, borðað, fótbolta, berjamó, borðað
hammara og svo fór ég með pabba á e-ð tún þarna og var að keyra,,
sem var náttla bara snilld.
fórum svo fjótlega að ganga frá og kvöddum lýðinn og fórum heim..
var nú rotuð fyrir 10 í gærkveldi.
blellert
»
24.07.2007 22:09:32 / fanneykr;*
jæja í dag á elskan mín hún eva afmæli
[www.evabjorkb.central.is] til hamingju með það.. sweet 16;**
  
sææta spææta;*
---------------------------
ok. útsölurnar í fullum gangi,, allir streyma um búðirnar og
allt í "fokki í búðunum" maður,, fötunum bara hent útum allt og
fullt af fötum í klefum þvílíkar 3.km biðraðir í klefa sem og að
afgreiðsluborðinu og læti,, afgreiðslukonunar alltaf hlaupandi um
allt og hafa engan tíma í að sinna manni. þið skynjið mig?
en í rvk/kóp þá er alveg HELLINGUR af búðum með e-n 15-30%
skítaafslátt en samt flykkjast allir í búðir bara uppá kúlið..
kaupakaupakaupa -- útsölurútsölurútsölur,, en svo þegar maður
loksins fer suður a þessar magnificent útsölur þá er annaðhvort
allt búið,, alltof lítið eða hugeZ! svona er þetta.. svo oftast
finnur maður boli eða peysur.. svo svona accessories, hárskraut,
belti og svona "rusl" alltaf nóg að því en svo búðirnar á Ak, þúst
þessar nokkrar hræður hérna,, gallery, fargo, centro, perfect..
svona "aðal"búðirnar.. þær koma með bara e-n rooooosa 40-70 %
afslátt og náttla flykkjast ALLIR í búðir og svo þegar maður er
loksins búnað finna e-ð við hæfi voða jolly labbar út með pokana,,
heyrðu neinei þá eru bara 2/5 í eins fötum,, það er hræðilegt,,
keypti mér rauða nikita peysu á laugardaginn,, fór svo á Glerártorg
á þriðjudaginn eftir vinnu í peysunni en úlpu yfir.. heyrðu ég leit
svona inní Vodafone og neinei þá var stelpa í NÁKVÆMLEGA eins
peysu!!! hversu leiðinlegt án spaugs.. mér langaði mest að skila
henni,, mér finnst bara e-ð kjánalegt við þetta.. það er annað með
buxur og boli og skó en peysur, seisei.. svo ég renndi bara upp
úlpunni og gekk mína "greiðu"leið.. eruði ekki sammála með þetta?
svo þegar maður fer suður bara sisvona.. þá finnur maður HELLING af
fötum en það kostar líka sitt en maður fer í zöru og þá er maður
"SAFE",, alltaf hellingur til þar.. sama hvað þú þarft, love it!
fer ekki út úr henni tómhentur, ekki séns,, sama hvort þú hafir
bara farið þangað til að skoða, sleppur ekki hehe, það er samt
merkilegt, maður fer kl. 11 á föstudagsmorgni,, samt er ALLTAF
skrilljón manns þarna,, er fólk ekkert að vinna?? skrýtið
en tuðið er útrunnið núna..
blessbless
»
20.07.2007 17:58:52 / fanneykr;*
nei hæ
hey hef geggjað mikið pælt í þessu.. að segja ; ég er heit/ur
fyrir þessum / þessari.. ok. pælið aðeins í þessu,, maður er að
segja að manni lítist á þessa tilteknu manneskju en þetta lítur
geggjað út eins og maður sé að segja, fyrir þessum er ég heit..
skynjiði mig ekki hehe.. mér hefur svo lengi langað að spurja e-n
út í þetta þú veist.. af hverju að segja heit? manni verður ekkert
heitt þegar maður sér manneskjuna nokkuð? allavegna ekki mér... ég
verð bara stressuð eða e-ð annað haha.. ég er heit fyrir þessum,
alveg stórkostlegt! hver brougth-aði þetta eiginlega upp, þetta og
t.d. eruði e-ð að möndla?, það er búið að nauðga þessu lagi,
ógeðslega gott ( ógeðslegt er e-ð sem manni býður við eða e-ð haha
skondið )
en jæja.. það er e-ð sport í því að blogga en maður veit aldrei
hvað maður á að skrifa.. sest þarna niður og bara .. [] allt tómt..
en ég er svona að pæla að byrja og ég VEIT að ég er alltaf að
skipta um síðu, fara í nýja og fl. en skiptir það e-ju máli eða?
bara svona pæling útaf margir tala um þetta.. hehe
en leikur móti ÍA á morgun hjá 3.fl.kv,, veit ekkert hverjar
verða í hópnum svo gangi þeim vel sem eru að fara að keppa, komist
að því á eftir akkúrat..
þór - ÍBV í kvöld... þórsarar töpuðu fyrir KA síðasta mánudag..
æjæj svo nú er komið að sigri!
hey held þetta sé gott? en allavegna er ég búin að gera e-ð smá
vikunnar og svolleis til að gleðja síðuna smá því ég á nú ekki
myndavél og heldur EKKERT í lífinu til að taka mynd af.. tek ekki
myndir í vinnunni og ekki á æfingu, það er eiginlega það eina sem
maður gerir á daginn en það er svona ok. útaf inga rakel og emma
eru í vinnunni og allar skemmtilegu fótboltastelpurnar á æfingum
svo maður fær að sjá andlit á daginn hehe.
á morgun á hún Katrín Emma Jónssdóttir 17 ára afmæli, gaman af
því, hef þekkt hana bara forever sko.. alveg síðan ég var örugglega
svona 3ja ára. svo emma til hamingju með morgundaginn elskan og
hafðu það gott, farðu varlega á götum bæjarins;*
en vil líka óska mömmu og pabba til hamingju með 10.ára
brúðkaupsafmæli í gær. Þau giftu sig 19.07.97 jájá easy going, en
þau giftust í Laufáskirkju af séra Pétri Þórarinssyni. Blessuð sé
minning þín elsku Pétur;*
sjáumst ;*

eg og íunn mín
»
|
|